top of page
Handbók húsmæðra

1000 húsráð

Ýmsir höfundar

 

Húsráð af ýmsum toga hafa fylgt þjóðum heims um aldir og erum við Íslendingar þar engin undantekning. Góð og gild ráð erfast á milli kynslóða en önnur lakari verða glatkistunni að bráð. Í þessari bók er að finna 1000 gömul húsráð sem ættu að geta nýst við hverskyns vandamálum sem upp kunna að koma innan veggja heimilisins. Er hiksti þig lifandi að drepa eða fló á skinni? Eru varirnar sprungnar og nefið rautt? Þarftu að losna við óþef í hvelli og rauðvínsblett úr flík? Eru skórnir of þröngir eða hanskarnir skjóttir? Er kaffið svikið og hænan við aldur? Þarftu að fá páfagaukinn til að tala eða fæla burtu mýs?

 

Svör við öllu þessu og svo miklu fleiru finnur þú í þessari gagnmerku bók sem kom út á Íslandi fyrir ríflega 60 árum og hefur verið með öllu uppseld síðan þá. 1000 húsráð fyrir alla, jafnt konur sem karla.

bottom of page