top of page
Poems-Kápa.jpg
Poems that fell to Earth

Einar Guðmundsson

Frábærar ballöður, mikil leikni með málið, form og rím. 

Einar Már Guðmundsson, rithöfundur

 

Ljóðabókin er heildstæð hugvekja og hugrenningar höfundar í 30 ljóðum um mannkynið, ástina, draumana, veröldina og alheiminn. Hún sýnir vel virðingu og næmi skáldsins fyrir hinu mannlega og hugsanir hans um hvar við erum stödd í þessum heimi.

Ljóðin geta í senn verið alvörugefin og kímin og í þeim eru líka skemmtileg sjónarhorn á viðfangsefnin. Öll ljóðin eru á ensku en með háttbundinni hrynjandi og rími.

   Við lesturinn fer maður inn í hin ólíku sögusvið ljóðanna og finnur stemminguna og er hrifinn inn í annan heim. Inn á milli eru minningarljóð um frelsishetjur og samferðamenn höfundar. Ljóðin fjalla um hinar smáu nálægu og hlýju tilfinningar og eðli mannsins en líka um smæð mannkynsins í hinum stóra alheimi, vísindin og trúna.

Ljóðin hafa fæst birst áður og eru skrifuð á nokkrum áratugum.

Guðrún Hreinsdóttir, heimilislæknir.

 

bottom of page