Réttir á Íslandi
Mörg undanfarin ár hefur Anna Fjóla Gíslasóttir ljósmyndari leitað uppi bæði fornar og nýjar réttir um allt land og tekið af þeim myndir af mikilli fagmennsku.
Í þessari einstöku og fallegu bók eru ljósmyndir af um 700 nafngreindum réttum og fylgir fróðlegur texti með 250 þeirra. Allar réttirnar hefur höfundur svo staðsett með GPS-mælipunktum.
Ómissandi bók fyrir alla sem unna íslenskri náttúru og sögu.
„Þessi bók er gersemi því að auk réttamyndanna sýna myndirnar landslag, gróður og jarðmyndanir. Þarna koma líka fram mörg falleg sveitabýli. Í textunum er mikill fróðleikur sem hefur sérstakt þjóðfræðilegt gildi – Því er ljóst að bókin á erindi til margra.“
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson


